Margrét Einarsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um Worchesterhire sósu

Mannlegi þátturinn - A podcast by RÚV

Categories:

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag var Margrét Einarsdóttir búningahönnuður. Hún hefur rekið tískuverslun, verið stílisti og hannað föt í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Meðal annars fyrir kvikmyndirnar Hrútar, Vonarstræti og Snertingu, nýjustu mynd Baltasars Kormáks og svo hannaði hún búningana í sjónvarpsþáttröðunum Verbúðinni, Aftureldingu og þessa dagana er hún að vinna í gríðarstórri þáttaröð, King and Conquerer. Við fórum með henni aftur í tímann og rifjuðum upp æskuslóðirnar, í Svíþjóð og Reykjavík og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum hana til að segja okkur hvernig það kom til að hún fór að vinna í sínu fagi. Í matarspjallinu töluðum við um hina frægu Worcestershiresósu. Sósan rekur uppruna sinn til Englands á 19. Öld, en hvað er í henni og í hvað er best að nota hana? Tónlist í þættinum í dag: Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðarson) Fever / Sarah Vaughan (Eddie J. Cooley & John Davenport) Paroles... Paroles... / Dalida & Alain Delon (Giancarlo del Re, Giovanni Ferrio & Matteo Chiosso) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR