Lögguhorn: Þorið og klisjurnar
Sandkorn - A podcast by Stúdering á Svörtu söndum

Categories:
Margt og mikið hefur breyst hjá íslensku lögreglunni um síðustu áratugina. Ragnar Jónsson, bíódellukarl með meiru, er fulltrúi tæknideildar lögreglunnar og hefur sinnt allmörgum hlutverkum frá því að störf hans hófust árið 1990. Ragnar hefur lært að fresta aldrei hlutum því enginn veit hvað morgundagurinn beri í skauti sér. Hann er einn handritshöfunda Svörtu sanda sem eru nú að gera það gott úti í heimi. Ragnar er nýkominn heim frá viðburðarríkri ferð til Bandaríkjanna þegar samtal þeirra Tómasar er hljóðritað, sem er ekki í frásögur færandi nema heimsókn hans til höfuðstöðva FBI í Washington, DC, reyndist honum ógleymanleg. Lífið, listir og listilegir safngripir af margs konar toga eru Ragnari afar kærir og í Lögguhorni þessu er yfir víðan völl farið varðandi mannlega þáttinn í lífi og starfi aðkomu hans að Svörtu söndum, samningaviðræður og hvernig hann stóðst þá áskorun að skrifa sína fyrstu ástarsenu. Efnisyfirlit: 00:00 - Hugarútrás á vinnustað 06:50 - ,,Ragnar (persónan) er ég” 08:10 - Helgarvaktir í löggunni 09:03 - ,,Hvað vilja áhorfendur sjá?” 17:17 - Heimsókn til höfuðstöðva FBI 21:21 - Tækni við samningaviðræður 24:40 - Listin að skrifa ástarsenu… 27:40 - ,,Þú verður að þora meira”